Hilma - hönnun og handverk

MarEik 25A

2.590 kr

Lífvirkt garn

Dásamlegt prjónaband úr 75% ólitaðri íslenskri ull og 25% SeaCell TM trefjum. SeaCell TM eru cellulósa trefjar unnar úr trjám, frá sjálfbæru skógarhöggi, með þangi úr Breiðafirði. Með þanginu kemur lífvirkni, t.d. andoxun og bakteríuhamlandi virkni.

Andoxun er góð fyrir húðina og bakteríuhamlandi virknin vinnur gegn svitalykt og sýkingum.

Þá er ullin meðhöndluð þannig hjá Gilhaga að það er töluvert af ullarfitu í henni eftir þvottinn, hún smyr hendur þínar við prjónaskapinn og húðina þegar flíkin er notuð.

Bandið er tvíband og það eru 145 m í 50 grömmum.

Bandið er ólitað, það eru 4 þvottekta sauðalitir í boði: hvítur, grár, mórauður og svartur, SeaCell TM trefjarnar eru rjómalitar og hafa áhrif á lokaútlit bandsins, dekkri litir hafa tweed áferð.

Gott er að nota prjóna númer 2,5-3,5 mm

Prjónfesta á prjóna nr.2,5 er 30 lykkjur og 36 umferðir á 10 cm.

Mælt er með handþvotti og láréttri þurrkun.

Recently viewed