Skilmálar
Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða fyrir vörur með kreditkorti í gegnum Payment Request frá MyPos, með Netgiro eða með millifærslu.
Afhending vöru
Þegar þú verslar á hilma.is færð þú vöruna senda heim að dyrum með Íslandspósti eða á næsta pósthús. Ef verslað er fyrir 10.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu en fyrir pantanir undir 10.000 kr bætast 500 kr við í sendingarkostnað.
Ef þú vilt skipta eða skila vöru þá er það þér að kostnaðarlausu, sendir einfaldlega til okkar með póstinum og við greiðum fyrir það.
Við sendingar erlendis geta tollar og gjöld viðkomandi lands bæst við vöruverðið sem er ekki innifalið í verðunum á hilma.is
Skilafrestur
Samkvæmt reglum um rafræn kaup, mátt þú hætta við kaupin innan 14 daga að því tilskildu að vörunni sé skilað í upprunalegum umbúðum og í því ástandi sem hún kom til þín. Greiðslukvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með ef um vöruskil er að ræða. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.
Endurgreiðsla er gerð á sama kreditkort, Netgiro reikning og kaupin áttu sér stað með upphaflega. Athugið að endurgreiðsla getur tekið allt að 5 virka daga að ganga í gegn. Þetta getur verið mismunandi eftir kortafyrirtækjum/þjónustum og getum við því miður ekki haft áhrif á þetta.
Ef pöntuð vara passar ekki er sjálfsagt mál að skipta um stærð eða í aðra vöru svo lengi sem lagerstaða okkar leyfir. Þú sendir vöruna aftur til okkar þér að kostnaðarlausu. Ef um skipti eða skil er að ræða biðjum við þig vinsamlegast að hafa samband við okkur í gegnum netfangið hilmahandverk@gmail.com
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu geta breyst án fyrirvara. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl og prentvillur. Hilma.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. Vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með vsk og reikningar eru gefnir út með vsk.
Upplýsingar um seljanda
Hilma - handverk og hönnun - ehf.
Kt. 500717-0330
Stekkholt
551 Sauðárkrókur
Sími: 8653614
Vsk-númer. 128949
Bankareikn. 0161-26-005024
Persónuvernd
Hilma.is virðir friðhelgi persónuupplýsinga viðskiptavina sinna. Með því að heimsækja vefinn okkar lýsir þú þig samþykkan þeim hefðum sem lýst er í núverandi yfirlýsingu um persónuvernd og öryggi. Ef þú hefur áður heimsótt vefinn okkar vinsamlega kynntu þér yfirlýsinguna að nýju til að fullvissa þig um að þú þekkir núverandi skilmála.
Persónulegar upplýsingar sem við söfnum
Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi, símanúmeri og kreditkortanúmeri, í tenglsum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar, svo sem kreditkortanúmer og heimilsfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisföng, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir því sem þú kaupir.
Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf frá hilma.is
Neðst í öllum tölvupóstum frá hilma.is er hnappur sem býður uppá að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.
Að versla á vefnum okkar
Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum stérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna.
Kortaupplýsingar eru geymdar á öruggum stað á meðan á greiðsluferlinu stendur.
Ábyrgðarskilmálar
Ef vara telst gölluð munum við skipta henni eða endurgreiða, allt án kostnaðar fyrir viðskiptavini. Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, þvotti, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar.
Svo hægt sé að meta hvort vara sé gölluð þarf að skila henni til Hilmu.